Viðmið fyrir foreldra, starfsfólk skóla/leikskóla og dagforeldra.
Það er réttur barnsins að vera heima þegar það er veikt, t.d. með hita eða almenna vanlíðan. Veikt barn getur smitað önnur börn sem kallar á fjarvistir bæði barna og foreldra. Einnig eru líkur á að starfsfólk geti smitast.
Unnið af Ágústi Ó. Gústafssyni heimilislækni í samráði við Þórólf Guðnason barnalækni.
Hitalaus = miðað við < 38°C við endaþarmsmælingu eða < 37,5°C við munnmælingu.
| Sjúkdómur | Meðgöngutími (tími frá smiti þar til einkenni koma fram) |
Smithætta frá | Smithætta þangað til | Hvenær má barnið mæta aftur í leikskóla/skóla eða til dagforeldris |
|---|---|---|---|---|
| Augnsýking | 1-3 dagar. | Augað er rautt og umgjörðin bólgin, gröftur í augum og smithætta á meðan. | Einum sólahringi eftir að sýklalyfjameðferð er hafin. (sjá nánar undir augnsýkingar). | |
| Gröftur í augum í tengslum við kvef | Í tengslum við kvef. | Einstaka gröftur í augnkrók, mest eftir svefn. Auga ekki rautt eða bólgið. Smitar ekki. | Má mæta þrátt fyrir augneinkenni
(sjá nánar undir augnsýkingar). |
|
| Eyrnabólga | Staðbundin miðeyrnarbólga er ekki smitandi. | Barnið hitalaust og líður vel. | ||
| Eyrnabólga
(vökvi lekur frá eyrum) |
Oft fylgikvilli öndunarfærasýkingar. | Örsjaldan inniheldur vökvinn bakteríur sem geta smitað. | Veltur á því hvort barnið sé með kvef eða önnur einkenni sem gætu smitað. | |
| Fimmta veikin
(parvovirus B19) |
1-2 vikur. | Nokkrum dögum áður en útbrot koma fram. | Útbrotin eru komin fram.
Getur verið varasöm þunguðum konum, sérstaklega á fyrsta hluta meðgöngu. |
Barnið hitalaust og líður vel. |
| Flökkuvörtur | 1 vika –
6 mánuðir. |
Vörtur sjást. | Meðferð hafin. | Engin takmörk. |
| Frunsa | 2-12 dagar. | Blöðrur myndast. | Blöðrur eru þurrkaðar upp. | Engin takmörk. |
| Hand-, fót- og munnsjúkdómur | 3-8 dagar. | Upphafi sjúkdóms. | Útbrot horfin. | Barnið hitalaust og líður vel. Útbrot í rénum. |
| Hlaupabóla | 2-3 vikur. | Viku eftir smit og nokkrum dögum áður en útbrot koma fram. | 5 dögum eftir að útbrot koma fram eða ekki koma nýjar bólur í 2 daga og bólur orðnar þurrar. | Bólur orðnar þurrar eða eftir 5-7 daga. |
| Inflúenza | 1-5 dagar. | Einum sólahringi áður en einkenni byrja. | Barnið orðið einkenna- og hitalaust. | Barnið hitalaust og líður vel. |
| Kossageit | 1-3 dagar. | Vökvi lekur frá sárunum. | Sárin orðin þurr og skorpurnar detta af eða eftir sólahring á sýklalyfjum. | Þegar sárin eru gróin og skorpurnar detta af eða eftir sólahring á sýklalyfjum. |
| Kvef, hálsbólga og veirusýkingar | 1-7 dagar. | Sólahringi áður en einkenni byrja. | 5 daga eftir uppaf einkenna. | Barnið hitalaust og líður vel (sjá nánar undir kvef, hálsbólga og veirusýkingar). |
| Lús | 2-8 vikur. | Smiti. | Þar til meðferð hafin. | Þegar meðferð er hafin. |
| Mislingabróðir
(exanthema subitum) |
1-2 vikur. | Óþekkt. | Óþekkt. | Barnið hitalaust og líður vel. |
| Niðurgangur og ælupest | Einhverjir dagar. | Upphaf niðurgangs eða uppkasta. | Ekki lengur niðurgangur eða uppköst. | Ekki lengur niðurgangur eða uppköst og barni líður annars vel (sjá nánar undir niðurgangur og ælupest). |
| Nóroveira
|
Einhverjir dagar. | Upphaf niðurgangs eða uppkasta. | 2 daga eftir að niðurgangur og uppköst eru hætt. | 2 dögum eftir að niðurgangur og uppköst eru hætt og barni líður annars vel (sjá nánar undir niðurgangur og ælupest). |
| Njálgur | 2-6 vikur. | 2 vikur eftir smit. | Meðferð hafin. | Engin takmörk eftir að meðferð hafin. |
| Streptókokka hálsbólga og skarlatsótt. | 1-3 dagar. | Frá því barnið smitast. | Einum sólahringi eftir að sýklalyfjameðferð er hafin. | Einum sólahringi eftir að sýklalyfjameðferð er hafin og barninu líður annars vel (Sjá nánar undir streptókókkar og hálsbólga). |
| Sveppasýking í húð | Vikur. | Útbrot koma fram. | Meðferð hafin. Mjög lítil almenn smithætta. | Engin takmörk. |
| Vörtur | 2-3 mánuðir. | Vörtur koma fram. | Meðferð hafin. | Engin takmörk. |
Fengið af vef Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þann 11. desember 2018.