Þann 14. mars byrjum við að bjóða pláss í Vinagarði fyrir skólaárið 2023-2024.

Í haust verða alls um 25 pláss laus og aðlögun fyrsta hóps hefst mánudaginn 14.ágúst.

Í Vinagarði er tekið inn eftir aldri barns á sama hátt og í öðrum skólum í Reykjavík.

Á biðlista í Vinagarði eru mörg börn fædd 2021 sem verður aðal innritunarárgangurinn að þessu sinni en þó eru nokkur aðeins eldri að koma til okkar sem hafa flust í hverfið.

Nánari upplýsingar um innritun er hægt að fá með því að senda póst á vinagardur@kfum.is