Starfsáætlun Vinagarðs fyrir næsta starfsár er nú tilbúin. Þar er t.d. að finna innra mat skólans á liðnu starfsári, umbótaáætlun og þróunarverkefni næsta árs ásamt skóladagatali. Matsteymi skólans vann ötullega að innra mati í allan vetur og aflaði gagna um skólastarfið frá ýmsum sjónarhornum. Næsta starfsár verður matsteymið víkkað út og fulltrúum foreldra boðin þátttaka. Starfsáætlunin verður einnig kynnt nánar á haustfundi í september 2022.

 

Starfsáætlun 2022-2023 Vinagarður