Leikskólinn Vinagarður sem er hluti af KFUM og KFUK á Íslandi leitar að starfsfólki í hlutastöður frá næstu áramótum. Við leitum að starfsfólki sem hefur gaman af því að vinna með börnum og fullorðnum og vera hluti af því að hlúa að uppbyggilegu umhverfi fyrir börn í samræmi við stefnu leikskólans. Við erum staðsett við Holtaveginn í Laugardalnum á sama stað og aðalskrifstofa KFUM og KFUK. Hægt er að vinna 1-3 daga í viku, frá kl. 13/13:30-16:30. Einnig losna stundum 80-100% stöður svo það er um að gera að hafa samband við okkur ef það kemur að því að leita að fullu starfi. Starfsumhverfið er skemmtilegt og launin eru betri en margir halda! Þau sem hafa reynslu af starfi innan KFUM og KFUK eru sérstaklega boðin velkomin. Nánari upplýsingar hjá Hildi leikskólastjóra, hildur@kfum.is og 664 8473.