Jólaball Vinagarðs verður haldið laugardaginn 8. desember kl. 11:00 í samkomusal KFUM og KFUK við Holtaveg.

Jólaskemmtunin hefst með helgileik barna á Uglugarði og því mikilvægt að mæta tímanlega.

Kæru foreldrar við óskum eftr vörum á jóla- og sælkerabasarinn t.d. baksti, sælkeravörum, handavinnu o.fl.
Basarinn er helsta fjáröflun foreldrafélagsins og mjög mikilvægur okkur til að hægt sé að halda viðburði og annað á vegum foreldrafélags Vinagarðs.
Vinsamlegast mætið örlítið fyrr með vörurnar á basarinn svo hægt sé að verðmerkja þær.

Jafnframt óskum við eftir foreldrum sem geta aðstoðað við undirbúning og frágang í samkomusalnum fyrir og eftir jólaballið. Gott væri ef þið gætuð skráð ykkur hér að neðan um hvort þið getið komið með eitthvað á basarinn og/eða hvort þið getið hjálpað til við uppsetningu eða frágang.

Jólakveðjur, stjórn foreldrafélags Vinagarðs