Nordplus Junior verkefninu „Stuðningur fyrir börn í leikskólastarfi“ (NPJR-2024/10046) er nú lokið. Vinagarður tók þátt í verkefninu ásamt leikskólum frá Litháen og Eistlandi. Verkefnið snéri að því að bæta gæði leikskólastarfs fyrir börn á aldrinum 3-6 ára sem þurfa sérstakan stuðning.

Í verkefninu var markmiðið að styðja við kennara með því að heyra frá öðrum skólum um aðferðir sem nýtast öllum börnum, fá hagnýt ráð og hugmyndir að verkefnum í daglegu starfi sem stuðla að því að öllum börnum finnist þau tilheyra í leikskólastarfinu.

Samstarfsaðilar miðluðu reynslu sinni, ræddu starfshætti í menntun án aðgreiningar í mismunandi löndum, prófuðu verkefni í leikskólum sínum og söfnuðu gagnlegum hugmyndum fyrir kennara. Þetta samstarf styrkti kennarana í faglegri hæfni hvað snertir vinnu með börnum sem hafa mismunandi þarfir.

Ein af lykilniðurstöðum verkefnisins var samantekt fyrir leikskólakennara sem felur í sér hagnýt aðgengileg verkefni, hvernig aðlaga má verkefni að ólíkum áhuga og þörfum, dæmi um góða starfshætti og verkfæri sem hægt er að nota í daglegu leikskólastarfi. Við vonum að þessi samantekt muni nýtast öðrum kennurum sem eru að leita að einföldum og hagnýtum leiðum til að nota með barnahópnum sínum. Við vonum að verkefnið muni leggja sitt af mörkum til að gera starfshætti í leikskólum styðjandi og inngildandi fyrir öll börn.

Við þökkum öllum samstarfsaðilum innilega fyrir samstarfið, kennurum, sérfræðingum og starfsfólki leikskóla sem lögðu til tíma, þekkingu, hugmyndir og umhyggju.

#Nordplus

#NordplusJunior

#Inclusivesupport