Vinagarður tekur þátt í nýju Nordplus Junior verkefni sem hefst nú í ágúst 2026 og stendur fram í júní 2028. Verkefnið heitir “Art Meets Science: STEM learning for all” (NPJR-2026/10082). Í verkefninu vinna saman 5 skólar frá fjórum löndum, Lettlandi, Finnlandi, Svíþjóð og Íslandi með það að markmiði að samþætta skapandi starf og vísindalega hugsun sem styrkir nám og þroska allra barna.
Á næstu tveimur árum verða heimsóknir milli allra þátttökuskóla og samvinna um þematengd verkefni milli heimsókna auk þess sem hugmyndum og verkefnum verður safnað í gagnabanka til að auðga daglegt starf í leikskólanum. Skapandi hugsun, vísindalegar vinnuaðferðir, útinám og skynjunarupplifanir ýta undir forvitni og virkni barna í leikskólastarfinu. Einnig mun verkefnið styrkja hæfni kennara sem læra á samvinnunni við hina skólana og fá nýjar hugmyndir að viðfangsefnum fyrir nám og þroska barnanna.
Samstarfsaðilar eru Valmiera Gaujas Krasta skóli og þróunarsetur í Lettlandi, Leikskólasvið Korsholm sveitarfélagsins í Finnlandi, Leikskólasvið Lustigkullen sveitarfélagsins í Svíþjóð, Gefnarborg og Vinagarður á Íslandi.
