Leikskólinn Vinagarður hefur nýlokið þátttöku í fjölþjóðlegu verkefni sem styrkt var af Nordplus áætluninni. Verkefnið nefndist „Reynslunám í leikskóla“ (NPJR-2024/10044), og var unnið í samstarfi við leikskóla frá Litháen og Noregi.

Undanfarin tvö ár höfum við unnið saman að því að framkvæma ný verkefni með börnunum sem miða að þeirri hugmyndafræði að ung börn læri best með því að kanna, upplifa, skapa og ígrunda.

Meginmarkmið verkefnisins var að styrkja gæði leikskólastarfsins með því að efla uppgötvunarnám, útinám og verkefni tengd sjálfbærni. Verkefnið snéri að börnum á aldrinum 1-5 ára, leikskólakennurum og leiðbeinendum. Leikskólarnir í löndunum þremur deildum reynslu, miðluðum góðum starfsháttum og könnuðu hvernig daglegt starf í leikskólanum getur orðið virkara, meira skapandi og tengt náttúrunni.

Ein afurð verkefnisins var hagnýt aðferðafræði fyrir leikskólastarf í þessum anda. Aðferðafræðin er tekin saman til að styðja kennara við að skipuleggja verkefni sem ýta undir forvitni barna, sköpunargáfu, gagnrýnina hugsun, félagsfærni og vitund um náttúruna umhverfis okkur.

Í verkefninu fengu þátttakendur nýjar hugmyndir og styrktu faglega hæfni sína. Með því að læra af mismunandi leikskólaumhverfi á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum sáu kennarar nýjar leiðir til að nota útirými, náttúruleg efni, skynjunarleiðir, leik, athuganir og könnun í daglegu leikskólastarfi.

Það er mikilvægt fyrir nám ungra barna að það sé innihaldsríkt, miðað að þeim og tengt þeirra hugarheimi og reynslu.

Niðurstöður verkefnisins geta nýst:

  • leikskólakennurum,
  • sérfræðingum í menntun ungra barna,
  • leik- og grunnskólum,
  • foreldrum,
  • samtökum sem hafa áhuga á útinámi, sjálfbærni og reynslunámi.

Kennarar, foreldrar og aðrir sem vinna með ungum börnum er velkomið að fá sendar upplýsingar um aðferðafræði og hugmyndir verkefnisins, nota þær í daglegu starfi og aðlaga að eigin börnum, hópum og umhverfi. Það þarf ekki sérstakan útbúnað – bara forvitni, tíma og vilja til að kanna nýja hluti með börnum.

Með þessu verkefni vonumst við til að halda áfram að hvetja til virkara, náttúrumiðaðra og sjálfbærara náms í leikskólum og stuðla að grænu, skapandi og samstarfsmiðuðu menntasamfélagi Norðurlanda og Eystrasaltsríkja.

#nordplus

#nordplusjunior

#letstalkaboutnordplus