Í sumar mun Vinagarður nota tímann og skipta um upplýsingakerfi – frá Karellen yfir í Völu. Í júlí munum við því ekki taka við umsóknum um pláss í leikskólanum  í gegnum heimasíðuna. Umsóknarkerfið verður aftur virkt í ágúst. Innritun í Vinagarð fer eftir aldri barna svo þessi lokun hefur ekki áhrif á innritunina. Við höfum tekið inn í öll laus pláss fyrir næsta vetur en það er um að gera að eiga umsókn hjá okkur, leikskólaumhverfið er síbreytilegt!