Undanfarnar vikur hefur starfsfólk skólans unnið ötullega í að taka upp nýtt leikskólakerfi. Kerfið heitir Karellen og hægt er að nálgast allar helstu upplýsingar um það á www.karellen.is. Með nýju kerfi mun upplýsingaflæði og samskipti milli skóla og heimilis eflast.

Til þess að fá aðgang að innra kerfinu, biðjum við ykkur að fara inn á https://my.karellen.is, smella á ‘Virkja aðgang’ og skrá netfangið ykkar sem er skráð hjá skólanum. Þá fáið þið sendan tölvupóst með slóð, smellið á slóðina til þess að virkja aðganginn ykkar (ath. hann gæti farið í ruslpóstinn) þá fáið þið upp valmöguleikann að búa til lykilorð. Ef pósturinn berst ekki, hafið þá samband við stjórnendur skólans.

Auk þess að hafa aðgang að innra kerfinu í gegnum vefsíðu er app sem að við mælum með að þið náið í. Hægt er að nálgast appið á App store og í Google play.
Aðgangur aðstandanda í innra kerfinu og appinu gefur yfirsýn og upplýsingar um dag barnsins í skólanum:

  • Viðveruskráningar
  • Máltíðarskráningar
  • Svefnskráningar
  • Matseðill vikunnar
  • Viðburðardagatal
  • Samtal milli aðstandenda og skólans
  • Myndir af barninu

Aðstandendur hafa þann möguleika að skrá leyfi og veikindi barnsins í gegnum kerfið.

Hlökkum til að deila með ykkur þessum nýjungum í leikskólastarfinu og vonum að kerfið muni nýtast fyrst og fremst til að efla upplýsingaflæði og frekari samskipti milli heimilis og skóla.

Karellen upplýsingar til foreldra