Leikskólakennari eða leiðbeinandi óskast til starfa í leikskólann Vinagarð Holtavegi 28

Vinagarður er sjálfstætt starfandi leikskóli rekinn af KFUM og KFUK á Íslandi. Skólinn er fimm deilda leikskóli  staðsettur í jaðri Laugardals þar sem stutt er í skemmtilegar gönguleiðir og opin náttúrusvæði. Í stefnu skólans er lögð rík áhersla á kærleiksríkt og öflugt lærdómssamfélag þar sem samvinna og gleði ríkir. Í leikskólanum er lögð áhersla á læsi í víðum skilningi, málörvun, stærðfræði, hreyfingu, vettvangsferðir, samskipti og sköpun.   Við Leggjum áherslu á góð og jákvæð samskipti.  Þar sem hver einstaklingur fær  tækifæri til að  rækta hæfileika sína.

Einkunnarorð Vinagarðs og leiðarljós í starfi eru: Trú, von og kærleikur.

Helstu verkefni og ábyrgð

Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt stefnu og skipulagi skólans undir stjórn deildarstjóra.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leikskólakennaramenntun eða önnu uppeldismenntun.
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum æskileg.
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum .
  • Frumkvæði í starfi.
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
  • Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar

Upplýsingar gefa María Sighvatsdóttir leikskólastjóri og María Jónsdóttir aðstoðarleikskólastjóri í síma 553-3038.