Aðalfundur Vinagarðs leikskóla KFUM og KFUK verður haldinn mánudaginn 4. maí 2020 kl. 20:00. Fundurinn verður haldinn í stóra salnum á efri hæðinni á Holtavegi 28. Fundurinn var áður á dagskrá í mars en var frestað vegna samkomubanns. Á fundinum verður gætt að því að 2 m fjarlægðarmörk á milli fundarmanna verði virt.
Dagskrá
- Starfsskýrsla leikskólans.
- Starfsskýrsla stjórnar.
- Ársreikningur
- Starfs- og fjárhagsáætlun 2018
- Kosning í stjórn
- Kosning skoðunarmanna reikninga
- Önnur mál.
Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa fullgildir félagar í KFUM og KFUK á Íslandi sem greitt hafa árgjald liðins starfsárs. Foreldrar barna á Vinagarði eru velkomnir á fundinn.