Þá er komið að hinum árlega og frábæra þrifadegi leikskólans. Í ár er það miðvikudagurinn 3. maí* frá kl.16:30 sem foreldrar og forráðamenn barna á Vinagarði koma saman, eftir leikskóla, og taka til hendinni við að hreinsa og fegra leikvöll barna okkar.

Hér er markmiðið að allir leggi hönd á plóg við að gera umhverfi barna okkar hreinna, betra og fegurra. Mætum öll ásamt börnum okkar og leikum okkur, fegrum og grillum svo enginn fari svangur heim 🙂

* Að sjálfsögðu er þetta viðmiðurnardagsetning sem gæti breyst ef verðurútlit er ekki hið ákjósanlegasta á þessum degi, þó svo veðurspáin lofi fögru þegar auglýsingin er hengd upp. En áætlað er að ef breytingar verði á dagsetningu þá verði vorhreingerningunni lokið fyrir Vorhátíðina laugardaginn 13. maí nk. sem verður auglýst nánar síðar.